Aðeins um
okkur.

Nýtt þak ehf. er fjölskyldu fyrirtæki sem hefur verið starfandi um árabil og var stofnað af hjónunum Eiði Ingvarssyni og Edith Oddsteinsdóttir.

Eiður lærði smiðinn hjá pabba sínum og er með yfir 20 ára reynslu í smíðum og ýmiskonar verktöku, tengda byggingu og viðhaldi fasteigna.

Hjá Nýtt þak starfa húsasmiðameistarar og löggildir smiðir. Við erum í góðu samstarfi við málara, múrara, pípara og rafvirkja þegar þess gerist þörf. Hjá Nýtt Þak eru meistarar í öllum iðngreinum sem ábyrgjast verktöku þegar þess gerist þörf.

Allt frá stofnun, hefur Nýtt þak sinnt alhliða byggingu og viðhaldi fasteigna en á síðustu árum hafa þau sérhæft sig í þökum, gluggum og klæðningum.
Nýtt þak er framsækið fyrirtæki og getur tekist á við fjölbreytt og krefjandi verkefni hvort sem þau eru stór eða lítil. Fyrirtækið býr að langri reynslu af alhliða viðhaldsvinnu og getur gert tilboð í krefjandi verkefni í samstarfi við aðra verktaka.

Fyrirtækið er vel búið fyrir stærri verk, með öllum þeim verkfærum og tækjum sem til þarf. Mikil áhersla er lögð á að nota viðurkennd efni frá ábyrgum og virtum framleiðendum.

Fyrirtækið hefur unnið fyrir fjölda fyrirtækja, stofnanir, félagasamtök, húsfélög og einstaklinga.
Verkefnin hafa verið fjölbreytt í gegnum árin og er reynslan orðin mikil.

Nýtt þak ehf. sérhæfir sig í þakskiptum, þakviðgerðum, þakmálun og almennri smíðavinnu.

Skrifstofur Nýtt Þak ehf. eru að Skemmuvegi 14, Kópavogi.

,, Ekki láta hvern sem er skipta um þakið hjá þér!”

Eiður Ingvarsson

Eigandi og stofnandi

Teymið

Eiður Örn Ingvarsson
Eigandi / Framkvæmdastjórn / Smiður

Eiður Stofnaði fyrirtækið ásamt eiginkonu sinni 2018 en hefur  yfir 20 ára reynslu í faginu. Víðtæk þekking og fagmennska einkenna hans starfshætti.

Edith Oddsteinsdóttir
Eigandi / Framkvæmdastjóri fjármálasviðs

Edith stofnaði Nýtt Þak ásamt Eið árið 2018. Edith hefur seinasta áratuginn komið að rekstri ýmissa fyrirtækja og árið 2018 sneri hún sér alfarið að rekstri Nýtt Þak.

Laimis Simovicious
    Laimis Simovicious
    Meðeigandi / Smiður / Verkefnastjóri

    Laimis hefur unnið hjá Nýtt Þak í fjögur ár og gerðist meðeigandi haustið 2023. Laimis hefur mikla reynslu að baki þrátt fyrir ungan aldur og erum við ótrúlega lánsöm að fá hann í Nýtt þak “fjölskylduna”.  Það er enginn jafn snöggur og Laimis og gæðin alltaf í fyrirrúmi.

      Hrólfur Ingólfsson
      Húsasmíðameistari / Byggingafræðingur

      Hrólfur er meistari í sínu fagi og hefur starfað með Eið í fjölda ára. Annan eins reynslubolta er erfitt að finna.

      Bogdan Tsohkla
      Verkstjóri / Smiður

      Bogdan hefur unnið  fyrir okkur sem verktaki endrum og eins seinustu 5 ár en kom alfarið til starfa hjá Nýtt þak fyrir ári síðan. Bogdan er okkar þúsundþjalasmiður. Menntaður Suðumaður, með BS í vélaverkfræði, sjúkraflutningamaður og lærður smiður.Við erum einstaklega glöð að Bogdan sé partur af okkar flotta teymi og metum alla hans kunnáttu mikils.

        Oleksii Podoliak
        Starfsmaður / Aðstoðamaður smiðs

        Oleksii er með mikla reynslu í bransanum og er mikilvægur hlekkur í keðjunni. Sér til þess að allt gangi smurt og vinnur sína vinnu af kostgæfni.

        Eldur Aron Eiðsson
        Húsasmiður

        “Sjaldan fellur eplið langt frá eikinni”

        Eldur Aron er búinn að vera með pabba sínum uppá þaki í mörg ár og útskrifaðist úr húsasmíði 2025. Eldur er að taka meistarann ásamt því að vera í fullu starfi hjá Nýtt Þak. “Maður getur alltaf á sig blómum bætt” og er Eldur einnig með vinnuvélaréttindi og gegnir stöðu öryggis trúnaðarmanns hjá Nýtt Þak. Sannkallaður dugnaðarforkur.

        Fyrri verk

        Hér má skoða nánar nokkur af okkar fyrri verkum með því að ýta á myndirnar. Það koma inn fleiri sýnidæmi af vel unnum verkum á næstunni.

        Tilboð þér að kostnaðarlausu!

        Viltu fá verðtilboð þér að kostnaðarlausu eða ert með fyrirspurn til okkar?

        Ekki hika við að senda okkur skilaboð hér að neðan og við munum svara þeim eins fljótt og unnt er.

        Hjá okkur eru fagmenn með
        yfir 20 ára reynslu.