Myndband:
Verk: Flétturimi 1-7
Vissir þú? Í umfangsmeiri verkefnum sem kosta 10 milljónir eða meira, leggjum við til verktryggingu sem gildir í eitt ár frá verklokum. Verktrygging er 5 % af samþykktu tilboði og fellur úr gildi við úttekt að ári liðnu. Þannig veitum við okkar viðskiptavinum öryggi um fullklárað verk.
Verkefni:
Þakskipti, Settur var Nýr YEP 2200 rifþolinn þakpappi með límrönd. 0.64mm ólitað aluzinc skotið á með serútbúinni þakskrúfu byssu. Komið var fyrir loftræsti blásurum, öndunar túðum og nýrri þaklúgu.
Upphafstími verks:
Guðrún Haraldsdóttir, formaður húsfélagsins hringdi um miðjan júní og spurði hvenær við gætum byrjað ef þau samþykktu tilboðið okkar.
Eiður svaraði að þetta væri svo krefjandi þak að það þyrfti helst að gerast í júlí, og að hann væri tilbúinn að seinka öðrum verkum og setja Flétturimann í forgang ef þau samþykktu.
Áætlaður verktími verkkaupa var 12 vikur + tafir.
Það voru 10 grjótharðir kallar sem byrjuðu að rífa af þakinu 05.07.2021
Það gekk vægast sagt mjög vel á þakinu og við vorum búnir að pakka saman í kringum 15.08.2021. (40 dagar, það á ekki að vera hægt að klára á svo stuttum tíma).
Lengd verks:
Tæpar 6 vikur.
Staðsetning:
Flétturimi 1-7, Reykjavík.
Stærð:
Um það bil 1200m2
Efni:
0,64 millimetra ólitað Aluzinc frá Stjörnublikk. Yep 2200 þakpappi, rifþolinn með límrönd heftaður á í gegnum plast renning.
Helstu áskoranir:
Að ná að rífa af og gera vatnshelt áður en fór að rigna.
Að halda öðrum kúnnum sem þurfti að fresta, rólegum á meðan var verið að gera þessa 1200m2 vatnshelda.
Myndir:
Allt stóðst eins og um var samið!
Það var lítið mál að leysa þau litlu vandamál sem komu uppá á verktíma, Við gefum Nýtt Þak ehf. okkar bestu meðmæli.
Guðrún Haraldsdóttir
Formaður húsfélags Flétturima 1-7
Allt stóðst eins og um var samið!
Þeir hjá Nýtt þak ehf. sáu um þakskiptin hja okkur á Kleppsvegi 18-24. Verkið gekk ótrulega hratt og vel fyrir sig, umgengni var sérlega góð á lóð og í kringum blokkina á meðan á verkinu stóð, þakið er fallegt og mér finnst frágangur mjög fallegur.
Guðný Ólafsdóttir
Kleppsvegi 18
Allt stóðst eins og um var samið!
Ég vil bara nota tækifærið og þakka kærlega fyrir mig. Þetta hefur gengið hratt og vel og eftir því sem ég fæ séð er útkoman með besta móti.
Fannar Breki Þórarinsson
Fjallalind 85-87
Ég er sammála að þetta lítur mjög vel út og hefur gengið afar vel, ég er í það minnsta mjög ánægður. Takk kærlega.
Halldór Gíslason
Fjallalind 85-87
Leystu verkefnið glimrandi vel. Við verklok komu vaskir menn og þrifu meitihàttar vel eftir framkvæmdirnar.
Hringbraut 17
Hjá Nýtt þak er fagmenskan í fyrirrúmi. Samskiptin við iðnarmennina voru góð, þeir pössuðu alltaf uppá að það yrði sem minst röskun og óþægindi af framkvæmdunum og frágengin í lok hvers dags og í verklok var til frábær.
Mæli með Nýtt þak.
Álfaskeið 4
Nýtt þak skiptu út stórum hluta af þakinu, græjuðu þakkanta og rennur. Miklir fagmenn, gengu hratt og vel í verkið, fékk upplýsingar um verkið meðan á stóð og staðið var 100% við tilboð. Sanngjörn verðlagning hjá þeim! Mæli hiklaust með þeim.
Álfaskeið 1
Nýtt þak endurnýjuðu bárujárnsþakið hjá okkur, við erum ánægð og mælum með þeim, áreiðanlegir og vandvirkir.
Blönduhlíð 5
Nýtt þak ehf. hafa sett upp miliveggi, tekið niður veggi, lagað hurðar, þak, skipt um gler o.fl. s.l. 3 ár. Vinna og frágangur var til fyrirmyndar.
Öll samskipti voru eins og best er á kosið við iðnaðarmenn og verktaka.
Snyrtimennska og fagmennska einkenna þeirra vinnubrögð.
Framkv.st. Prentmet/Oddi
Guðrún Haraldsdóttir
Formaður húsfélags Flétturima 1-7
Guðný Ólafsdóttir
Kleppsvegi 18
Fannar Breki Þórarinsson
Fjallalind 85-87
Halldór Gíslason
Fjallalind 85-87
Hringbraut 17
Álfaskeið 4
Álfaskeið 1
Blönduhlíð 5
Framkv.st. Prentmet/Oddi
Fyrri verk
Hér má skoða nánar nokkur af okkar fyrri verkum með því að ýta á myndirnar. Það koma inn fleiri sýnidæmi af vel unnum verkum á næstunni.
Tilboð þér að kostnaðarlausu!
Viltu fá verðtilboð þér að kostnaðarlausu eða ert með fyrirspurn til okkar?
Ekki hika við að senda okkur skilaboð hér að neðan og við munum svara þeim eins fljótt og unnt er.